Elsa ráðin framkvæmdastjóri pírata

Elsa Kristjánsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Pírata. Hún mun taka til starfa 1. febrúar 2020. Starfandi framkvæmdastjóri fram að þeim tíma er núverandi upplýsingastjóri Pírata, Róbert Ingi Douglas.

Síðustu misseri hefur Elsa starfað sem rekstrar og fjármálastýra UN Women á Íslandi. Í því starfi bar hún ábyrgð á bókhaldi félagsins, utanumhaldi um rekstur, skýrslugerð til stjórnar, deilda og höfuðstöðva félagsins í New York. Þá sá hún einnig um skjölun, rekstrar og fjárhagsáætlanagerð.

Elsa er með BSc-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Þá hefur hún enn fremur lokið námi frá Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands- rannsóknamiðstöð um stjórnarhætti þar sem hún hlaut titilinn viðurkenndur stjórnarmaður. Á heimasíðu Pírata segir:

„Elsa hefur starfað í grasrót Pírata og verið virkur þátttakandi í starfi flokksins síðustu árin. Hún hefur gegnt hinum ýmsu trúnaðarstöðum; s.s. formaður fjölmiðlunarhóps, ritari kjördæmafélags, skoðunarmaður reikninga, gjaldkeri framkvæmdaráðs og setið í úrskurðarnefnd.“

Í frétt á vef Pírata segir einnig:

„Píratar bjóða Elsu velkomna um borð og óska henni til hamingju með nýja starfið.“