Heimsbyggðin hefur ýmist dáðst eða hneykslast á því afreki Elons Musks að senda Tesla-bíl sinn út í geiminn á eilífðarbraut og láta tvær af þremur eldflaugum lenda aftur óskaddaðar á jörðinni.
Þetta er magnað einkaframtak og fordæmalaust.
Í bílnum eru græjur sem spila án afláts lag Davids Bowies, Space Oddity. Valið á laginu er vitaskuld umdeilt eins og allt annað, en glöggir menn hafa þó undrast eitt.
Hvernig ætlast Elon Musk til þess að frændur okkar í geimnum heyri lag Bowies?
Sá geimur sem við þekkjum er nefnilega lofttæmi – eins og í lofttæmdu tilraunaglasi.
Og í lofttæmi berast engin hljóð.
Ef Elon Musk hefur fundið lausn á þessu án þess að segja okkur hinum frá því hlýtur hann að fá Nóbelinn í eðlisfræði mörg ár í röð – og einhver kraftaverkaverðlaun líka.