Ellý: sigmundur hættir í stjórnmálum - þjáning og fórnfýsi

Nú er árið 2019 senn á enda og við tekur nýtt ár og ný tækifæri árið 2020. Hringbraut hafði samband við spákonuna Ellý Ármanns sem leit til gamans í tarotspil sín fyrir nokkra þjóðþekkta Íslendinga.

Ellý sagði álit sitt um fjölmarga þekkta Íslendinga og við byrjum í stjórnmálunum og einum umdeildasta pólitíkus landsins. Hann er formaður Miðflokksins og heitir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Þetta segir Ellý um Sigmund Davíð.

„Sigmundur syndir burt úr pólitík og er staðráðinn í því að koma ekki aftur. Hér hljómar himnesk óánægjurödd innra með honum sem hann neitar svo á endanum að hlusta á. Lykilorð Sigmundar árið 2020 eru þjáning og fórnfýsi.

\"\"

Neptúnus og tólfta hús ráða yfir undirmeðvitund Sigmundar og þess vegna verður hann alltaf í mótsögn við sjálfan sig þar til hann gengst við og gerir sér ljós markmið í lífinu. En hann hættir í pólitík á árinu,“ segir Ellý staðföst.

Frekari spádómar frá Ellý bíða síðan birtingar.