Í öðrum þætti í þáttaröðinni Keppnin: Besti maturinn á Hringbraut í kvöld mæta fjölmiðlahjónin Freyr Einarsson og Ellý Ármannsdóttir, en þau elda keppnisrétti þar sem aðalrétturinn er kjúklinga núðluréttur og í desert búa þau til skyrdesert með ávöxtum og dökku súkkulaði.
Spjallað er undir eldamennskunni og Ellý segir áhorfendum meðal annars frá skemmtilegum fyrsta fundi þeirra hjóna þar sem ástin kviknaði við fyrstu sýn. En til öryggis ákvað Ellý að bóka fyrsta alvöru “date” þeirra hjóna á sérvalinn veitingastað svo hún hefði möguleika á að yfirgefa svæðið ef Freyr reyndist ekki eins spennandi og hann leit út fyrir að vera. Í dag eru þau búin að vera í hamingjusömu sambandi alveg frá fyrsta fundi og eru í dag eins og ástfangnar turtildúfur!
Fram kemur í spjalli þeirra hjóna við sjónvarpskonuna Völu Matt að Freyr eldar oftast á heimilinu en Ellý mjög sjaldan!
Í þessum skemmti- og matarþáttum fær Vala nokkra þjóðþekkta Íslendinga, sem eru þekktir fyrir skemmtilegheit, til þess að koma í eldhúsið til hennar og elda einn aðalrétt og einn desert. Réttirnir þurfa að vera fyrir fjóra og mjög einfaldir og fljótlegir að matreiða og mega ekki kosta meira en 3000 krónur samanlagt. Undir matreiðslunni er spjallað um lífið og tilveruna ásamt því að skoða hvernig réttirnir eru búnir til. Það er mikið hlegið og spjallað á léttum nótum.
Í lok hvers þáttar eru réttirnir dæmdir og gefnar eru stjörnur frá einni og uppí fimm stjörnur. Dómarar með Völu eru þeir Albert Eiríksson áhugakokkur og sælkeri og Gunnar Helgason leikari sem er í hlutverki “venjulega mannsins” og gerir hann mikið grín að sinni vankunnáttu á matargerð sem gefur oft tilefni til hláturs og gleði. Báðir dómararnir eru dúndur skemmtilegir og þeir fylgjast með matreiðslunni og taka þátt í spjallinu.
Keppnin: Bestir rétturinn er frumsýnd klukkan 20:00 í kvöld og endursýnd klukkan 22:00.