Nú er árið 2019 senn á enda og við tekur nýtt ár og ný tækifæri árið 2020. Hringbraut hafði samband við spákonuna Ellý Ármanns sem leit til gamans í tarotspil sín fyrir nokkra þjóðþekkta Íslendinga. Fyrr í dag birti Hringbraut umfjöllun Ellýjar um Sigmund Davíð en hún spáir því að hann hætti á þingi á næsta ári. Nú spáir Ellý fyrir bræðrunum og tónlistarmönnunum Friðrik Dór og Jóni Jónssyni. Spilin segja að þeir verði fulltrúar okkar í Eurovision og slái í gegn úti í hinum stóra heimi í kjölfarið.
„Friðrik er fagur, þokkafullur maður en hann á það til að vera latur og það er í lagi. Hann er duglegar á milli þess sem hann slakar vel á. Hann dýrkar hið ljúfa líf og sogar að sér gjafir og skjall. Hann nýtur góðs matar og ekkert endilega hollustu en núna í byrjun árs tekur hann sig á og byrjar fyrir alvöru að hreyfa sig og gerir það samviskusamlega út árið,“ segir Ellý.
Hún segir pabbahlutverkið fara Friðriki vel og að honum muni ganga allt í haginn.
„Nýir slagarar og tónleikar eru fram undan og samstarf við tónlistarmenn sem eru töluvert eldri en hann og reyndari. Hér lætur Friðrik Dór undan þrýstingi og viti menn hann endar sem Eurovisionfarinn okkar þetta árið og kemur okkur í úrslit. Sigurboginn birtist hér, hvort um sé að ræða sigur í Eurovision eða hvort þetta sé tækifæri fyrir hann til að stíga inn í Evrópu popp heiminn sé ég ekki. En sigurvegari er hann, ótvíræður.“
Um Jón Jónsson, bróður Friðriks segir Ellý
„Skynfæri Jóns eru háþróuð og hann skynjar með þeim öllum. Konan hans er styrkur og stendur þétt við bak hans. Hann sér hulinn tilgang í hverju harmleik og það kemur honum ávallt á áfanga stað. Mér sýnist hann standa með bróður sínum í Eurovision keppninni og þeir fara saman út. Mikil gleði og stór gluggi opnast fyrir þeim bræðrum út í heim. Ekki seinna vænna.“