Ellý ármanns ávarpar guð og er farast úr spenningi: „langar mest að hraðspóla fram í febrúar“

„Langar að þakka þér frá mínum dýpstu hjartarótum, góður guð, fyrir að leyfa mér að verða amma. Þér að segja er ég gjörsamlega að farast úr spenningi. Mig langar mest að hraðspóla fram í febrúar þegar barnið dregur sinn fyrsta andardrátt. Ég reyni samt eins og ég get að halda aftur af mér í ömmu-tryllingnum.“

Þetta segir þúsundþjalasmiðurinn Ellý Ármanns. Hún er listakona, húðflúrari, spákona og lengi verið einn okkar vinsælasti fjölmiðlamaður, svo fátt eitt sé nefnt. Ellý fékk nýverið þær gleðifregnir að sonur hennar, Ármann Elías og unnusta hans, Magnea, ættu von á barni. Ellý greindi fyrst frá þessum tíðindum á Facebook-síðu sinni en segir í samtali við Hringbraut að Ármann sé frumburður hennar. Ellý er í skýjunum og birtir fallegt bréf þar sem hún þakkar æðri máttarvöldum en um leið og hún biður Guð að passa uppá Ármann og Magneu. Ellý segir í bréfinu:

„Mig langar helst að flytja inn á son minn og unnustu hans bara til að fá að vera með þeim og fylgjast með öllu sem þau eru að upplifa með litla kraftaverkið þeirra og segja þeim hvað ég upplifði þegar ég varð móðir og vera til staðar ef þau þarfnast mín. En já ég vil þakka þér svo mikið fyrir að halda í hönd mína og styðja mig í því sem ég er að takast á við á hverjum degi. Nærvera þín sér til þess að uppgjöf er ekki til í mínum heimi.“

\"\"

Á mynd: Ármann, Magnea og Ellý, 12 ára dóttir Ellýjar

Þá segir Ellý að ósk hennar sé að verða fyrirmyndar amma, sem sé sigurvegari en ekki fórnarlamb. Amma sem láti drauma sína rætast á hverjum einasta degi og láti ekkert stöðva sig, sama hvað bjáti á. Hvort sem það er að mála myndir, húðflúra fallega líkama eða spá í spil. Ellý segir:

„Þakka þér fyrir að sleppa ekki takinu á mér því ég þarfnast þín. Þakka þér fyrir að minna mig á að vera ég sjálf og hlusta aldrei á gagnrýnis raddir eða eitthvað þarna úti sem slær mig út af laginu í vegferð minni.“

Ellý endar svo bréf sitt á þessum orðum:

„Ég treysti að þú standir mér áfram við hlið. Passaðu samt einstaklega vel strákinn minn og fallegu konuna hans sem gengur með barnið þeirra sem ég get ekki beðið eftir að hitta og elska. - Þín Ellý „bráðum amma“.“