Ellilífeyrisþegum fjölgar um 70%

Framundan eru miklar áskoranir sem munu reyna á fjárhag ríkisins. Þjóðin er að eldast en á næstu 15 árum mun ellilífeyrisþegum fjölga um 70% eða um 26 þúsund, úr 37 þúsund í 64 þúsund.

Þetta kemur fram í kynningu á opnum umræðufundi sem fer fram í dag. Breytingarnar munu óhjákvæmilega auka útgjöld hins opinbera til lífeyrisgreiðslna, heilbrigðisþjónustu og  umönnunar aldraðra. Eftir 15 ár, árið 2030, er  áætlað að ellilífeyrisgreiðslur Tryggingarstofnunar verði 22% hærri að raungildi en nú eða sem nemur 10 milljörðum.

Umræðufundurinn verður um fjármál ríkisins sem Samtök atvinnulífsins efna til í dag í Hörpu kl. 15.

Fulltrúar allra stjórnmálaflokka Á Alþingi taka þátt í fundinum, Katrín Júlíusdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, Ásta Guðrún Helgadóttir, þingmaður Pírata, Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, Brynhildur S. Björnsdóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og varaformaður Framsóknarflokksins og Bjarkey Ólsen Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.