\"Það er ömurlegt fyrir okkur sem eigum allt undir sjávarútvegi að stjórnmálamenn skuli ítrekað leyfa sér að vega að atvinnugreininni. Það veikir sjávarútveg og sjávarbyggðir. Orð Gunnars Braga hafa vægi og í karpi um utanríkismál hefur hann ekkert að gera með að viðhafa slíkar hótanir.\"
Þannig kemst Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum að orði á vefsíði sinni í dag. Þar bregst hann vægast sagt óvkæða við þeim orðum utanríkisráðherra frá því um helgina að fyrst útgerðarmenn vildu ekki sýna samfélagslega ábyrgð þegar kæmi að viðskiptaþvingnunum á hendur Rússum væru þeir kannski ekki réttu aðilarnir til að hafa aðgang að auðlindum þjóðarinnar: \"Það er ekki þar með sagt að rangt hafi verið að styðja aðgerðir gagnvart Rússum, \" skrifar Elliði en segir ótækt að ekki hafi verið vandað betur til verka við undirbúnig alls þessa máls: \"Þá er einnig sjálfsagt að málflutningur ráðamanna við þessar aðstæður sé yfirvegaður, skýr og hófstilltur,\" skrifar Elliði einnig og meinar að ráðherra hafi misst sig í samtali við fjölmiðla og haft uppi óþarfa aðdróttanir í garð fólks í sjávarútvegi.
Eðlilegt sé til dæmis fyrir menn á borð við Gunnþór Ingvarsson framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar að gagnrýna opinberlega þann skaða sem búið væri að vinna á uppbyggingu á mörkuðum í Rússlandi þar sem Gunnþór hafi áhyggjur af fyrirtækinu og þeim 270 starfsmönnum sem þar vinna: \"Gunnar Bragi er sá stjórnmálamaður sem ber besta ábyrgð á því að markaðir fyrir uppsjávarfisk eru nú í uppnámi. Hann ber ábyrgð á því að fyrirtæki eins og Síldarvinnslan koma sennilega til með að lenda í miklum vanda. Hann ber ábyrgð á því að starfsmenn Síldarvinnslunnar tapa tekjum og einhverjir sjálfsagt vinnunni. Þessi ábyrgð gerir ákvörðun um viðskiptabann gagnvart Rússum hvorki rétta né ranga. Þessi ábyrgð gerir það hinsvegar að verkum að ákvörðunin er gagnrýniverð,\" skrifar eyjamaðurinn á vefsvæði sitt
Hann brýnir fyrir ráðherra að vera í tengslum við þjóð sína: \"Það er eðlilegt að stjórnmálamenn þurfi að ræða veigamiklar ákvarðanir sem snerta íbúa landsins. Það er eðlilegt að þeir þurfi að svara fyrir gjörðir sínar. Ef þeir ráða ekki við að gera slíkt á málefnalegan hátt þá eru þeir ekki starfi sínu vaxnir,\" skrifar bæjarstjórinn og segir að rétt viðbrögð ráðherra hefðu verið að útskýra og réttlæta ákvörðun sína en ekki viðhafa hótanir og brigslanir. Með því að nálgast málið ekki á málefnalegan hátt sé verið að gefa merki um vondan málstað.