„Nú er mál að linni!,“ segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss og fyrrverandi bæjarstjóri Vestmannaeyja, í pistli sem hann skrifar á Facebook.
„Það er hreinn og klár viðbjóður að hlusta á umræðu á opinberum vettvangi um Vestmanneyjar og Eyjamenn þessa daga. Ég upplifi fullyrðingar útvarpsmanna svo sem þessa: „Það er eins og þetta sé einhver íþrótt innfæddra að nauða konum frá meginlandinu“ sem ofbeldi gagnvart mér og mínum.“
Sjá einnig: Heiðar og Snæbjörn segja íþrótt Eyjamanna að „nauðga konum frá meginlandinu“
Vísar hann þar til ummæla þeirra Snæbjörns Brynjarssonar, fyrrverandi varaþingmanns Pírata, og Heiðars Sumarliðasonar, í hlaðvarpinu Eldur og Brennisteinn. Þeir hafa beðist afsökunar á ummælunum um að nauðganir séu „þjóðaríþrótt“ Eyjamanna og hefur þátturinn verið tekinn úr birtingu á vef Vísis.
Sjá einnig: Heiðar og Snæbjörn biðjast afsökunar á ummælum um Eyjamenn
Elliði segir svona ummæli árás: „Ég upplifi þetta sem sakfellingu án dóms og laga. Mér finnst hér ráðist gegn því sem mér er kært, heimahögum mínum, vinum og fjölskyldu. Það sem verra er þá finnst mér þetta skaða umræðu um kynferðislegt ofbeldi.“
Hann segir mál að linni að íbúar Vestmannaeyja séu stimplaðir.
„Fyrir skömmu var þátturinn Zúúber lagður af á Bylgjunni vegna fitusmánunar. Lektor hjá HR var sagt upp vegna ummæla um konur í lokuðum Facebook hópi. Starfsmaður Borgarleikhússin missti vinnuna fyrir að tala illa um samstarfsfólk sitt við móður sína í samskiptaforriti. Dæmi sem þessi eru mörg. Á sama tíma skellir samfélagið skollaeyrum við því að íbúar eins samfélags hér á landi séu stimplaðir sem kynferðisafbrotamenn.“
Elliði krefst þess að gripið verði í taumana. „Ég krefst þess að stjórendur fjölmiðla taki á þessu meini og beiti sér af fullri hörku gegn þessum plagsið. Ég skora á fólk að sitja ekki þegjandi undir umræðum þar sem heilu hóparnir, hvað þá íbúar heils samfélags, eru tengdir við alvarlegt ofbeldi eins og nauðgun. Ég hvet þá sem ræða þessi mál á opinberum vettvangi til að sýna drengskap og forðast umræðu sem valdið getur saklausu fólki óþarfa sársauka eða vanvirðu.“