11 sinnum fyrir efta-dómstól á einu ári

Íslandi hefur verið stefnt ellefu sinnum fyrir EFTA dómstólinn á einu ári.  Tvö ný mál voru send fyrir dóminn í dag þar sem stjórnvöld á Íslandi hafa brugðist skyldum sínum við að innleiða reglur Evrópska efnahagssvæðisins ár réttum tíma.


Þetta kemur fram í frétt hjá Félagi atvinnurekenda.  Samkvæmt þeirra upplýsingum hefur ESA. Eftirlitsstofnun EFTA, stefnt Íslandi fyrir EFTA-dómstólinn í ellefu málum eftir að Evrópustefna ríkisstjórnarinnar tók gildi fyrir réttu ári. Samkvæmt stefnunni er eitt af fjórum meginmarkmiðum hennar að á fyrri hluta árs 2015 „verði ekkert dómsmál fyrir EFTA dómstólnum vegna skorts á innleiðingu EES-gerða.“


Því fer fjarri að ríkisstjórnin hafi fylgt stefnu sinn því fimm mál voru send til EFTA dómstólsins í júlí 2014, tvö í október, tvö í desember og tvö mál nú í apríl. Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA segir þetta skaða hagsmuni íslenskra fyrirtækja og því sé full þörf á að endurskoða eftirfylgni Evrópustefnunnar.


„Það er brýnt hagsmunamál íslenskra fyrirtækja að sömu reglur gildi hér á landi og annars staðar á EES, til að tryggja aðgang þeirra að hinum sameiginlega markaði. Ríkisstjórnin hefur því miður ekki fylgt stefnu sinni eftir með því að ráðuneytin og sendiráð Íslands í Brussel fái þann mannskap og fjárveitingar sem þarf til að tryggja þessa hagsmuni. Það skaðar hagsmuni íslensks atvinnulífs. Nú þegar rúmt ár er liðið frá samþykkt stefnunnar án þess að hún hafi skilað sýnilegum árangri, hljóta menn að þurfa að endurskoða hvernig eftirfylgninni er háttað,“ segir Ólafur.