Ekki er annað að sjá í veðurkortunum en einhverrar snjókomu eða éljagangs gæti fram yfir næstu helgi um stóran hluta landsins, en þó hlýnar heldur um það leyti þótt ekki sé von á neinu sumarveðri í bráð. Stórhríð er á nokkrum stöðum á Norðurlandi og ófært um helstu þjóðleiðir, svo sem á hringveginum sem tengir Norður- og Austurland um Möðrudalsöræfi.
Veðurspáin gerir ráð fyrir éljum og skafrenningur norðan- og austanlands í dag, en að léttskýjað verði að mestu sunnan- og vestanlands. Það dregur smám saman úr vindi og ofankomu þegar líður á daginn, en þó verður 8-15 m/s í kvöld. Gert er ráð fyrir norðaustlægri átt, 5-10 m/s á morgun. Skýjað verður með köflum og úrkomulítið, en skúrir eða él sunnanlands síðdegis. Hiti um og yfir frostmarki, en allt að 10 stiga hiti sunnantil í dag. Heldur svalara verður svo á morgun.
Þetta veðurlag hefur sem fyrr segir sín áhrif á samgöngur. Torfært er sem fyrr segir um norðanvert landið og ástandið batnar lítt eða ekkert þegar austur dregur: Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og víða skafrenningur. Lokað er á Fjarðarheiði en mokstur stendur yfir. Ófært er á Vatnsskarði eystra. Snjóþekja og skafrenningur er á Oddsskarði og Fagradal - og þá er Öxi og Breiðdalsheiði enn ófærar.