Lítið lát er á vetrarharðindum þótt líitillega hafi þau linast á allra síðustu dögum. Þessa sér stað úti á þjóðvegum landsins sem enn eru viðsjárverðir. Eins og spáð var hefur éljað um vestanvert landið og þar er víða nokkur hálka, krapi eða snjóþekja. Hálka er til að mynda á Hellisheiði, Mosfellsheiði og Lyngdalsheiði en hálkublettir eru á köflum í uppsveitum á Suðurlandi.
Það er hálka eða hálkublettir á fjallvegum á Vesturlandi og sumstaðar eru einnig hálkublettir á láglendi. Vetrarfærð er á Vestfjörðum, hálkublettir, hálka, krapi eða snjóþekja víðast hvar, einkum á fjallvegum og þar er sumstaðar skafrenningur. Á Norðurlandi vestra er krapi eða nokkur hálka á köflum og raunar er líka hálka á Öxnadalsheiði en þar fyrir austan er greiðfært.
Spáð er frosti á sumardaginn fyrsta og éljagangi nokkuð víða í báli sem blæs að norðan fram á helgi. Það er því ljóst að vetur og sumar frýs saman að þessu sinni sem er svo sem í takt við þann vetur sem er væntanlega að kveðja.