Forsetafrúin ástsæla Eliza Reid flutti ávarp þegar Vísindaskóla unga fólksins var slitið við hátíðlega athöfn í Háskólanum á Akureyri í gær. Þar sló hún á létta strengi þegar hún svaraði nokkrum spurningum frá nemendum skólans. Greint er frá þessu á vef N4.
Vísindaskóla unga fólksins var slitið í sjöundasta sinn í gær en um 80 börn á aldrinum 11-13 ára tóku þátt í skólanum í ár sem staðið hefur yfir í viku.
Börnin fengu Elizu til að svara nokkrum hraðaspurningum.
Fengu þau Elizu til að segja frá því hvernig hún og Guðni Th. Jóhannesson forseti kynntust. Þá var hún spurð hvort hann væri sexy. Svarið var einfalt: „Já.“
Þá sagði Eliza að henni finnst eiginlega allur matur góður, nema egg.
Má til gamans geta að Guðni forseti á afmæli í dag, 26. júní, en hann er 53 ára í dag.