Birgir Sævarsson fylgist náið með stöðu mála í hlaupi Elísabetar og heyrir reglulega í henni hljóðið. Hann segir að hún hafi virkað í góðu standi í morgun þótt hún sé nú að hlaupa í eyðimerkurlandslagi og sandroki og því aðeins að berjast við aðstæður þessa stundina.
„En hún getur hlaupið vel og það er eiginlega ótrúlegt að heyra hvað henni líður vel miðað við það sem hún hefur gengið í gegnum síðustu sólarhringa. Hún hljómaði sterk.\"
Mikil dagsveifla er í hitastigi í eyðimörkinni og fór frostið allt niður í tíu gráður á tímabili. Birgir segir að þrátt fyrir að Elísabet hafi reynt að klæða sig sem mest hafi kuldinn níst inn að beini og vatn í brúsanum hennar frosið.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/elisabet-nalgast-markid