Elísabet Guðmundsdóttir, talskona gegn sóttvörnum, er ekki með lækningaleyfi. Þetta staðfesti Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn á fundi almannavarna.
Elísabet vakti mikla athygli þegar hún neitaði bæði að fara í sýnatöku og í sóttkví við komuna til landsins á föstudag. Elísabet hefur talað gegn hörðum sóttvarnaráðstöfunum og fór hún til að mynda á mótmæli sem haldin voru í miðborg Reykjavíkur á laugardag. Elísabet var harðlega gagnrýnd fyrir það, málið er nú á borði lögreglu.
Elísabet hefur meðal annars starfað sem læknir í Svíþjóð og hóf hún störf á Landspítalanum þann 1. apríl síðastliðinn á brjóstamiðstöð. Henni var sagt upp störfum í lok októbermánaðar og sagði hún í kjölfarið að uppsögnin hefði að líkindum komið til vegna aktívisma gegn COVID-19.