Flugfélagið PLAY fékk í dag fínustu meðmæli frá veðurfræðingnum Elínu Jónasdóttur, oddvita Vinstri grænna í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Í færslu á Twitter-síðu sinni sagði Elín frá því að hún að hún hefði klúðrað bókun hjá flugfélaginu og sent ósk um aðstoð.
„Fékk svar innan 5 mínútna og búið að bjarga sumarfríi fjölskyldunnar á innan við 10 mínútum,“ skrifaði Elín. „Frábær þjónusta, takk.“
PLAY var upp með sér með þessum meðmælum. „Dásamlegt að heyra 😍,“ svaraði flugfélagið í Twitter-þræðinum við færsluna. „Takk kærlega fyrir hrósið og gleðilega páska.“
Klúðraði bókun hjá @PLAYairlines og sendi tölvupóst með ósk um aðstoð. Fékk svar innan 5 mínútna og búið að bjarga sumarfríi fjölskyldunnar á innan við 10 mínútum. Frábær þjónusta, takk.
— Elín Jónasdóttir (@elinbjon) April 15, 2022