Elín hjólar í Dag: „Sum þeirra munu lifa við heilsubrest inn í fullorðinsárin“

Elín Jónsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hjólar af fullum krafti í Dag B. Eggertsson borgarstjóra vegna Fossvogsskóla, segir hún að borgin skuldi foreldrum afsökunarbeiðni.

Borgin ákvað í síðustu viku að taka allt skólahúsnæðið í gegn í annað skiptið á tveimur árum, verður nú gengið enn lengra í að taka allt mygluvaldandi efni og asbest.

Borgaryfirvöld hafa harmað stöðuna og hyggjast tryggja að allt verði gert til að hreinsa alla myglu úr húsnæðinu.

Elín segir í grein á Vísi að hún sé slegin yfir framkomu borgarinnar við foreldra síðustu misseri. „Upp koma margar spurningar vegna framferðis borgarinnar: Get ég t.d. treyst því að loftgæði séu í góðu lagi í skóla dóttur minnar? Get ég treyst því að þær framkvæmdir sem gerðar eru á skólabyggingum vegna viðhalds eða galla séu með fullnægjandi hætti eða gerðar yfir höfuð? Sjái ég eitthvað athugavert má ég reikna með því að mæta því mótlæti sem foreldrar barna í Fossvogsskóla hafa mætt?,“ spyr hún.

Hún segir foreldra hafa þurft að ganga mjög langt á eftir því að eitthvað verði gert. „Þeir hafa upplifað að ekki sé hlustað á þá og meira púður lagt í sannfæra þá um að ástand skólans sé gott eftir framkvæmdir sem hófust í mars 2019. Þeir hafa ítrekað reynt að benda á verstu svæðin í skólanum og þurftu að setja gríðarlegan tíma og orku í það eitt að fá úttektir á skólanum og sama máli gegnir um að fá niðurstöður úttekta. Staðan hefur meira að segja orðið svo slæm að foreldrafélagið réði sér lögfræðing,“ segir hún.

„Foreldrar hafa neyðst til þess að opinbera heilsufar barna þeirra í fjölmiðlum í þeirri veiku von um að borgaryfirvöld hlusti en í kjölfarið verið mætt með skeytingarleysi og tómlæti.“

Elín kallar eftir afsökunarbeiðni. „Alvarlegast finnst mér þó að eftir alla þá baráttu sem foreldrar hafa þurft að heyja til að fá áheyrn borgaryfirvalda hefur þeim ekki enn borist afsökunarbeiðni. Það er staðreynd að nemendur skólans hafa hlotið skaða af ástandinu og sum þeirra munu lifa við heilsubrest inn í fullorðinsárin vegna aðstæðna í skólanum þeirra.“

Hún kallar eftir því að einhver axli ábyrgð. „Ég vona að borgaryfirvöld hætti með innantóm loforð til foreldra og starfsmanna um að gera eitthvað. Heldur þyrfti að axla ábyrgð, viðurkenna mistök og fyrst og fremst gera betur.“