Elín fryst öðrum til viðvörunar

\"Elín Hirst kom skemmtilega á óvart um helgina þegar hún lét eftir sér að gagnrýna bæði forsetann og Davíð Oddsson um leið. Ekki var ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur,\" skrifar stjórnmálarýnandinn Ólafur Jón Sívertsen sem býst við að hún verði fryst fyrir vikið.

Pistlar Ólafs Jóns á Hringbraut vekja jafnan athygli, enda fer þar innsti koppur í íslenskri stjórnsýslu. Hann fagnar skrifum Elínar, segir eðlilegt að hún hafi gagnrýnt forsetann fyrir að tala óskýrt við setningu Alþingis - og sömuleiðis Davíð fyrir að teika ennþá flokk sinn - og neita að sleppa: \"Engum duldist að hún var að ávíta Davíð Oddsson fyrir samfelld niðurrifsskrif hans á síðum Morgunblaðsins. Hún lét Davíð fá það óþvegið. Eitthvað sem fæstir hefðu spáð að hún hefði kjark til. En lengi má manninn reyna,\" skrifar Ólafur Jón og lofar Elínu fyrir hugrekkið.

\"Skemmst er frá því að segja að fulltrúar flokkseigenda ærðust út af beittri gagnrýni Elínar Hirst á skuggaformann flokksins. Sumir af þeim sem tóku til máls notuðu ljót orð um þingmanninn og mátti skilja á málflutningi þeirra að Davíð Oddsson væri heilagur maður, hafinn yfir alla gagnrýni og það flokkaðist undir guðlast að tala til hans með niðrandi hætti,\" skrifar innanbúðarmaðurinn.

Hann lýsir innanmeini Sjálfstæðisflokksins á þennan veg: \"Vandi Sjálfstæðisflokksins og fylgisleysi á m.a. rætur að rekja til þess að núverandi formaður flokksins hefur ekki tekið sér það vald sem honum var falið með réttum hætti. Hann þorir ekki að hrista af sér gamla drauga eins og Davíð Oddsson, Björn Bjarnason og Styrmi Gunnarsson sem vaða uppi í flokknum með þeim hætti að kjósendur hrekjast frá honum. Bjarni Benediktsson þyrfti að spyrna við fótum og gera þessum gömlu körlum það ljóst að þeirra tími er löngu liðinn. Hann þyrfti að draga strik í sandinn og segja: Hingað og ekki lengra. En hann gerir það ekki og lætur þá ráða allt of miklu um stefnu flokksins. Hann eltir öfgastefnu þeirra í stað þess að fara brattur gegn þeim.\"

Og Ólafur Jón er viss um að Elínu verði refsað fyrir tiltækið: \"Mínar heimildir innan úr flokknum herma að Elínu Hirst verði refsað fyrir þetta framtak. Talið er að hún muni eftir þetta fá rýrari verkefni á vegum þingflokksins, að henni verið tekið með fyrirvara, að hún verði hreinlega fryst öðrum til viðvörunar.\"

Pistill Ólafs Jóns er í heild sinni í pistladálkinum hér á forsíðunni á hringbraut.is.