Eldveggir í húsinu að Miðhrauni 4 í Garðabæ héldu ekki og líkur eru á að allt sé ónýtt inni í því eftir stórbrunann í morgun. Þetta kemur fram í viðtali RÚV við Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóra á höfuðborgarsvæðinu. Að hans sögn verður kannað hvort einhverju hafi verið ábótavant við uppsetningu veggjanna.
Samkvæmt teikningum áttu tveir eldvarnarveggir að aðskilja lagerplássið þar sem eldurinn virðist hafa komið upp og geymslu- og skrifstofuhúsnæðið við hliðina.
Slökkvilið náði tökum á eldinum skömmu eftir hádegið. Einn slökkviliðsmaður féll milli hæða. Hann slasaðist ekki en er eitthvað marinn.
Starfsfólk Icewear sem komið var til vinnu rétt náði að komast út. Það þurfti að flýja út um glugga því hurðin sogaðist föst. „Ég held að við séum bara heppin að allir komust heilir út – eða þokkalega heilir, einhver brenndist nú,“ sagði Aðalsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Icewear í samtali við Rúv.