Eldur í íbúð í jórufelli

Rétt eftir miðnætti var tilkynnt um eld í íbúð í fjölbýlishúsi í Jórufelli. Slökkvilið frá öllum stöðvum á höfuðborgarsvæðinu var sent á staðinn.

Eldur braust út í íbúð á þriðju hæð og mátti sjá loga teygja sig út um glugga. Í dagbók lögreglu segir að slökkvistarf hafi gengið vel. Á vef RÚV kemur fram að slökkviliðsmenn hafi reykræst húsið og gengið úr skugga um að engar glæður væru í íbúðinni. Þá var strætisvagn sendur á svæðið fyrir íbúa í blokkinni.

Fólk var í húsinu þegar eldurinn kom upp en engan sakaði.