Eldur í fjölbýlishúsi að framnesvegi í reykjanesbæ í nótt

Eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi að Framnesveg í Reykjanes bæ á fimmta tímanum í nótt. Sex íbúðir eru í húsinu og voru þær allar rýmdar.

Um mikinn eld var að ræða en slökkvistarfi var lokið skömmu eftir klukkan fimm í nótt samkvæmt Vísi sem greinir frá málinu. Enginn var staddur í íbúðinni sem eldurinn kom upp í og fólki í öðrum íbúðum var gert að yfirgefa heimilið.

Íbúðin þar sem eldurinn kom upp var orðin alelda þegar slökkviliðsmenn mættu á vettvang og mikill hiti var í íbúðinni eftir að slökkvistarfi lauk.

Lögreglan á Suðurnesjum vinnur í því að rannsaka hvers vegna eldurinn kom upp.