Eldur braust út í íbúð á stúdentagörðum – konan sem býr í henni vistuð í fangageymslu

Á sjöunda tímanum í gærkvöldi kviknaði eldur í íbúð að Stúdentagörðum á Eggertsgötu. Ein kona, sem býr í íbúðinni, var stödd í henni þegar eldurinn braust út. Var konan í annarlegu ástandi þegar hún var færð á slysadeild Landspítalans í Fossvogi og var síðar um kvöldið færð til vistunar í fangageymslu, þar sem þess var beðið að unnt væri að yfirheyra hana. RÚV.is greinir frá.

Töluverðar skemmdir urðu á íbúðinni og tók það reykkafara um tíu mínutur að ráða niðurlögum eldsins. Um er að ræða litla einstaklingsíbúð á fyrstu hæð og einskorðaðist eldurinn við hana.

Ekki er vitað um eldsupptök að svo stöddu en rannsókn á þeim er nú hafin.