Eldum rétt og mönnum í vinnu stefnt vegna nauðungarvinnu rúmenskra verkamanna

Eldum rétt og Mönnum í vinnu, ásamt forsvarsmönnum fyrirtækjanna, hefur verið stefnt til greiðslu bóta fyrir meðferð þeirra á fjórum rúmenskum verkamönnum sem unnu hjá þeim í vetur. Eldum rétt keypti vinnuafl hjá starfsmannaleigunni Menn í vinnu í janúar, og bar með því ábyrgð á að kjör verkamannanna og aðstæður væru sómasamlegar samkvæmt lögum um keðjuábyrgð frá árinu 2018.

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu frá Eflingu – stéttarfélagi. Þar segir að nokkur fyrirtæki hafi keypt vinnuafl frá Mönnum í vinnu og að lögmannsstofan Réttur hafi að beiðni Eflingar farið fram á að þau ábyrgðust kaup og kjör starfsmanna sem Menn í vinnu höfðu brotið á á meðan þeir gegndu störfum fyrir umrædd fyrirtæki. Öll fyrirtækin gengust við því nema Eldum rétt.

Lögsókn gegn Eldum rétt og framkvæmdastjóra þess, ásamt Mönnum í vinnu og forsvarsmönnum starfsmannaleigunnar, hefur nú verið þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur.

Tvíþætt dómsmál

Samkvæmt Eflingu er dómsmálið tvíþætt. Annars vegar snúist það um ólöglegan launafrádrátt, eða alla þá fjölbreyttu mínusa sem settir voru á launaseðla rúmensku verkamannanna. Einn þessara mínusa var til að mynda fyrir World Class líkamsræktarkorti, sem margir starfsmenn könnuðust ekkert við að hafa notað. Var þeim sagt að kortið fengju þeir á sérstökum afslætti, en frádrátturinn á launaseðlinum reyndist þó hærri en áskriftargjaldið á verðlista World Class.

Hins vegar snýst dómsmálið um það sem Efling kallar veigameira atriði, þá vanvirðandi meðferð og þvingunar- eða nauðungarvinna sem verkamennirnir eru sagðir hafa sætt. Í ljósi þeirra aðstæðna sem verkamennirnir bjuggu við, og þess valds sem stjórnendur Menn í vinnu ehf. höfðu yfir þeim, telur Efling að þeir hafi verið „háðir boðvaldi og [settir] undir yfirburðarstöðu“ fyrirtækisins, líkt og segir í stefnunni. „Þessi staða blasir við í hvert skipti sem íslensk fyrirtæki sækja sér fólk erlendis frá án þess að upplýsa þau um réttindi sín – en það er ekki á hverjum degi sem þessi yfirburðastaða er nýtt af sambærilegri grimmd,“ segir í tilkynningu Eflingar.