Eldsneyti þróað úr þangi

 Mikill áhugi er víða um heim á að nota þang til að framleiða eldsneyti. Stórt tækifæri felst í þessum fyrir Ísland þar sem mikið er til af þangi hér og aðstæður til rannsókna góðar.

Nýtt verkefni, MacroFuels snýst um að þróa eldsneyti úr þangi, til dæmis bútanól, etanól , furanic-efni og lífgas (metan). Þetta er hluti af rannsóknaráætlun Evrópu 2014-2020, segir á heimasíðu Matís sem tekur þátt fyrir Íslands hönd.

Verið er að rækta þang ytra en hér á landi eru bakteríur einangraðar á jarðhitasvæðum og henta vel þegar verið er að vinna lífmassa eins og þang.

Þátttakendur er háskólar, rannsóknastofnanir og fyrirtæki frá Íslandi, Danmörku, Hollandi, Skotlandi, Belgíu og Þýskalandi. Matís mun þróa og rannsaka ensím og örverur til að brjóta niður þennan lífmassa og nýta til eldsneytisgerðar.