Eldri borgarar sviptir peningum sínum

Eignaupptaka verður hjá þeim eldri borgurum sem fara á hjúkrunarheimili. Mat lögfræðinga er að mannréttindabrot séu framin á þessum hópi fólks, þeim sem lögðu grunninn að velferð Íslendinga.

Þetta segir í glænýjum bloggpistli frá Björgvini Guðmundssyni sem vakið hefur mikla athygli. Þar segir að þegar eldri  borgari fari á hjúkrunarheimili geri Tryggingastofnun ríkisins lífeyri hans \"upptækan\" til greiðslu kostnaðar við dvölina á hjúkrunarheimilinu.

“Þetta er líkast eignaupptöku. Þeir, sem hafa meira en rúmar 74 þúsund í tekjur, mega sæta því,að það sem umfram er sé af þeim tekið fyrir dvalarkostnaði þar til náð er markinu tæpar 355 þúsund krónur. Þar stöðvast \"eignaupptakan\". Síðan er eldri borgurunum skammtaðir vasapeningar, 53 þúsund krónur að hámarki  en þessi greiðsla er tekjutengd,” skrifar Björgvin svo eftir hefur verið tekið.

Eldri borgararnir, sem fara á hjúkrunarheimili, eru ekki spurðir að því hvort þeir samþykki að lífeyrir þeirra sé tekinn af þeim í framangreindum tilgangi. Á hinum Norðurlöndunum er annar háttur hafður á. Þar fá eldri borgarar lífeyrinn í sínar hendur en síðan greiða þeir sjálfir eða aðstandendur kostnaðinn við dvölina á hjúkrunarheimilinu eftir því sem fram kemur.

“Það er mat lögfræðinga, að það sé mannréttindabrot að rífa lífeyrinn af eldri borgurum á þennan hátt. Við ættum að hafa sama hátt á þessu og á hinum Norðurlöndunum. Við þurfum að breyta þessu strax það er niðurlægjandi fyrir eldri borgara að þurfa að sæta því fyrirkomulagi, sem nú er viðhaft,” segir Björgvin Guðmundsson.

Lesa má pistil hans í heild hér.