Eldri borgarar og aðstandendur þeirra

Þátturinn Lífið er lag hefur göngu sína á Hringbraut kl. 20.30 í kvöld en þátturinn er ætlaður aldurshópnum 65+ og einnig aðstandendum aldraðs fólks á Íslandi og fjallar um stöðu, hagsmunamál og framtíðarsýn eldri borgara á Íslandi.

Þátturinn er unninn í samstarfi við Félaga eldirborgar í Reykjavík og nágrenni (FEB) auk annarra aðila sem koma að þáttagerðinni.  Fjallað verður um ýmis baráttumál sem lengi hafa verið í brennidepli, fræðslu um það sem er að gerast hverju sinni í málefnum eldri borgara og einnig komið inná léttari hluti eins og útivist, hollustu og heilbrigði. 

Alls verða 8 þættir á dagskrá fram á vor og þættirnir verða allir endursýndir með hefðbundnu sniði á Hringbraut.

Umsjónarmaður þáttann er Sigurður K. Kolbeinsson sem stýrt hefur Atvinnulífinu frá því útsendingar Hringbrautar hófust fyrir 3 árum og fær hann fjölda viðmælenda til sín.  Í fyrsta þættinum í kvöld verður fjallað um lækkun fasteignagjalda og rætt við Gísla Jafetsson framkv.stjóra FEB um þau mál og einnig spjallað við formann eldri borgara á Selfossi um það sem er afgang í buddunni þegar komið er efri árin.  Þá verður fræðst um ferðamál á vegum FEB og loks verður heimsókn á Hrafnistu þar sem veitingastaður þessa 60 ára gamla hjúkrunaheimilis verður kynntur og rætt við Pétur Magnússon framkvæmdastjóra. 

Þetta er þáttur sem enginn ætti að láta framhjá sér fara sem lætur sig hagmundi eldri borgara varða.