Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn segir að markmiðin í baráttunni gegn veirunni séu enn hin sömu. Hann stappaði stálinu í þjóðina í lokaræðu sinni á upplýsingafundi almannavarna í morgun.
„Markmiðin okkar í þessum faraldri eru áfram þau sömu. Við ætlum að tempra hann, við ætlum að draga úr smitum, við ætlum að verja heilbrigðiskerfið til að það geti sinnt sínu hlutverki og veitt að minnsta kosti lágmarksþjónustu og lágmarksöryggisstigi,“ segir Víðir.
„Við ætlum að halda áfram að verja viðkvæma hópa því það sýnir sig að við þurfum að gera það til að koma í veg fyrir alvarleg veikindi og frekari innlagnir. Við ætlum áfram að leita leiða og berjast við þessa veiru á landamærunum, takmarka komu hennar inn í landið og með aðgerðunum ætlum við líka að hefta samfélagsleg smit með það að markmiði að geta hér lifað í sem opnustu og frjálsustu samfélagi og á sama tíma haldið uppi ásættanlegu öryggisstigi.“
Að síðustu hvatti Víðir þjóðina til dáða: „Áfram veginn. Það er ekkert annað í boði og ég held að við séum tilbúin í það öll. Setjum undir okkur hausinn og tökumst á við þetta. Stöndum saman því samstaðan er það sem virkar og samstaðan er besta sóttvörnin. Við kunnum þetta. Við getum gert þetta. Við gerum þetta áfram. Passiði vel upp á hvort annað. Njótiði hátíðanna og sýnum hvort öðru kærleika á öllum sviðum. Gleðilega hátíð.“