Eldræða sigþórs: „við erum algjörlega brjáluð sem þjóð ef við látum þetta gerast“

„Það hefur verið deilt um hvort leyfa eigi að raska landi norður á Ströndum og byggja þar virkjun sem nýtir vatn úr Rjúkandi, Hvalá og Eyvindará. Ég var fyrst ekki mikið að velta þessu fyrir mér en eftir því sem umræðan jókst sótti að mér efi og síðan andstaða.“

Þetta segir Sigþór Sigurðsson í pistli sem hann birti fyrst á samfélagsmiðlum. Hann kveðst hafa ákveðið að kynna sér málin og farið ásamt hópi fólks fyrri hluta verslunarmannahelgar í Ófeigsfjörð. Þaðan hafi þau gengið um svæði sem til stendur að virkja. Miklar deilur hafa átt sér stað um fyrirhugaða virkjun í Ófeigsfirði en með henni munu fallegi fossar verða þurrkaðir upp, svo fátt eitt sé nefnt. Sigþór segir:

„Við erum algjörlega brjáluð sem þjóð ef við látum þetta gerast. Það verður að stöðva þessa hræðilegu framkvæmd. Það má aldrei verða að þarna verði lagðir vegir uppá heiðina og landi sökkt undir lón. Kynnið ykkur málin sjálf. Aldrei, stoppið þetta strax!“

Sigþór var að koma í fyrsta sinn á strandir, þá norðar en Hólmavík.

„Þvílík mistök að hafa ekki farið fyrr, svæðið allt er stórfenglegt og einstakt. Það er einnig magnað að sjá og upplifa mannlífið og söguna með því að skoða síldarverksmiðjurnar á Djúpavík og í Ingólfsfirði. Það eru mögnuð stórvirki þess tíma og sýnir hverju kapítalið fær áorkað. Og talandi um það, nú ætlar kapítalið uppá heiði, nánar tiltekið Ófeigsfjarðarheiði og ryðja þar upp einum fjórum eða fimm stíflugörðum, koma upp þremur risalónum og leiða vatn í gegnum túrbínur í stöðvarhúsi sem sprengja á inn í fjall. Stíflurnar verða allt að 33 metra háar. Leggja á 25 km af vegum á ósnortnu landi. Þá á eftir að leggja raflínur yfir heiðina niður í Djúp. Allt þetta fyrir 320 gígavattstundir á ári sem samkvæmt meðalverði Landsvirkjunar á GWst gefur um 1,5 milljarð í heildartekjur á ári. 1,5 milljarð!! það er ekki neitt í þessu samhengi verðmætanna sem kastað verður á glæ.“

\"\"

Sigþór bendir á að með þessu eigi tekjur Árneshrepps af virkjuninni að verða um 15 milljónir á ári, þá þegar virkjunin er fullsmíðum og komin í rekstur. Sigþór segir:

„Það gera um 24.000 kr á mánuði fyrir hvern þessara 53 íbúa hreppsins. Hvað er þetta eiginlega! Ágæta fólk, þetta snýst um að þarna eigum við ómetanleg verðmæti sem saman með friðlandinu á Hornströndum getur orðið að stórkostlegum þjóðgarði sem á engan sinn líka í Evrópu og ef ekki heiminum. Vegtengingar ná inn í Ófeigsfjörð að austan og í Unaðsdal á Snæfjallaströnd í að vestan. Lengra var ekki farið með vegagerð á sínum tíma þegar búið var á þessu svæði. Aldrei kom rafmagnið og með herkjum að fólkið sem harkaði í þessum hreppum fékk símalínu lagða um sveitirnar.“

Sigþór heldur fram að framtíð fólks á Ströndum verði ekki tryggð með því að byggja virkjun í Ófeigsfirði, aftur á móti verði hún tryggð með því að friða landsvæðið og selja inn á það dýrum dómum í nánustu framtíð og takmarka þannig átroðning. Sigþór segir:

„Byggja upp þjónustu vetur og sumar fyrir ferðamenn sem eru tilbúnir að borga fyrir eitthvað alveg sérstakt. Staðreyndin er sú að fólkið í Árneshreppi hefur verið svikið, það hefur verið skilið eftir afskekt með litla eða enga þjónustu frá okkur hinum í samfélaginu. Það er ekki einu sinni lagaður til þeirra vegurinn eða haldið opnun yfir vetrartímann. Hvurslags ótrúlegur aumingjaskapur er þetta af samfélagi að gera þetta með þessum hætti. Hverjir eru eiginlega þingmenn þessa fólks?“

Þá hrósar Sigþór ábúendum í Djúpavík fyrir að hafa byggt upp frábæra ferðaþjónustu og byggt safn í kringum síldarverksmiðjuna. Þá sé Krossneslaug einstök og ferðaþjónusta í Norðurfirði til fyrirmyndar. Vill hann að hreppsnefnd og aðrir rói á svipuð mið, það sé grunnur að framtíðarmöguleikum hreppsins, en aðeins þá ef svæðið verði verndað, því verðmætin séu hrá og ósnortin náttúra. Sigþór segir:

„Gerið þið ykkur grein fyrir því að tekjur af t.d 50.000 ferðamönnum sem hver og einn myndi eyða 30.000 krónum í hótelgistingu, mat, leiðsögn, sleðaferðir að vetri og göngur að sumri nema 1,5 milljarði. Sömu tekjur og þessi virkjun á að skila en munurinn er sá að þær tekjur skila sér beint til starfandi í hreppnum og myndu gera hann að einhverjum tekjuhæsta hrepp landsins og fjölga fólkinu. Og ef þið haldið að 50 þúsund manns sé einhver mannmergð þá vil ég benda á að að það eru 137 hræður á dag.“

\"\"

Samkvæmt Sigþóri hafa ábúendur í Árneshreppi verið sviknir af samfélaginu og þess vegna leiti nú sumir í örvæntingu í hvaða haldreipi sem býðst.

„Nú vindum við ofan af þessu rugli og hjálpum þeim að byggja upp ferðaþjónustu á heimsmælikvarða og setjum allan norðaustanverðan vestfjarðarkjálkann á Heimsminjaskrá,“ segir Sigþór og bætir við:

„Orkuskortur, rafmagnsleysi og vesen á Ísafirði og Vestfjörðum og tal um nauðsynlegar hringtengingar er allt af sama meiði. Blekkingar og bull. Allt er þetta hægt að leysa með öðrum hætti en hefur vantað viljann til þess. Vestfirðingar allir hafa verið sviknir af okkur hinum og nú er nóg komið. Vestfirðir per se eru ein mestu framtíðarauðævi sem þessi þjóð deilir með fólkinu sem enn býr á svæðinu en hefur farið fækkandi. Strandir, Hornstrandir og Jökulfirðirnir eru þar demanturinn.“

Sigþór hvetur fólk til að skrifa undir áskorun Landverndar og segir að lokum: „Ég kalla eftir því að þingmenn þessa kjálka hysji upp um sig brækurnar og fari að vinna fyrir fólkið sitt“