Það vakti athygli þeirra sem fóru um Búðardal og Akureyri í sumar að glæsilegar myndir af eldra fólki gat að líta á óvenjulegum stöðum. Það hefur ekki þótt neitt sérstaklega \"hipp og kúl\" að flagga myndum af eldra fólki, en þessar myndir reyndust vera hluti af verkefninu Inside Out Project þar sem ljósmyndarar vekja athygli á ákveðnum málstað með hjálp portrettljósmynda.
Helgi Pétursson ræðir við ljósmyndarann Steinunni Matthíasdóttur sem býr og starfar í Búðardal og við tónlistarmanninn og flugfreyjuna Helgu Möller um þetta verkefni, en leiðir Helgu og Steinunnar lágu saman í gegnum lag Helgu \"Tegamibréfið\" sem er frá Japan og fjallar um eldra fólk. Þátturinn Okkar fólk með Helga Péturssyni er að vanda á dagskrá kl. 20:30 á þriðjudagskvöldum.