Þetta kom fram í fréttum RÚV um helgina, en þar var bent á að mjög erfitt geti verið fyrir fólk, sem komið er yfir miðjan aldur, að fá aftur vinnu eftir að hafa misst hana. Það hafi að minnsta kosti verið reynsla Sólveigar Adamsdóttur sem deildi sögu sinni með áhorfendum Sjónvarpsins í liðinni viku, en hún missti vinnuna þegar hún var 62 ára og sótti um fjölmörg störf án árangurs. Í frétinni sagði að vitað væri um mörg önnur dæmi um eldra fólk sem ekki fær vinnu.
Þó svo að þetta sé reynsla einhverra sem komnir eru yfir miðjan aldur er atvinnuþátttaka eldra fólks á Íslandi með því mesta sem gerist í OECD ríkjunum. Og samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun er minnst atvinnuleysi meðal fólks 50 ára og eldri, að því er segir í framhaldsfrétt miðilsins. Þannig hafi í lok september verið 1.100 manns á aldrinum 50 ára og eldri atvinnulausir. 2.041 á aldrinum 30-49 ára og 1.346 16-29 ára.
Hannes G Sigurðsson, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri SA segir við RÚV að þær kannanir sem samtökin hafa gert sýni ekki fordóma gagnvart eldra starfsfólki heldur bendi til hins gagnstæða, að vinnuveitendur almennt meti reynslu og þekkingu eldri starfsmanna mjög mikils og kjósi fremur að ráða eldri starfsmenn en yngri.