Eldlínan: hvar er þessi stöðugleiki?

Staða íslenska flokkakerfisins var rædd í þaula í sjónvarpsþættinum Eldlínunni á Hringbraut í gærkvöld en þar mættust þrjár stjórnmálakonur af hægri og vinstri væng íslenskra stjórnmála í myndver ásamt einni af miðjunni - og tók í tálknin á tímabili.

Það voru stöllurnar Sigríður Á. Andersen frá Sjálfstæðisflokki, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Viðreisn og Rósa Björk Brynjólfsdóttir, Vinstri grænum sem deildu skoðunum sínum á breyttu pólitísku landslagi með Sigmundi Erni í þætti gærkvöldsins - og mátti heyra greinilegan meiningarmun á milli þeirra tveggja síðarnefndu og þeirrar fyrstnefndu þegar kom að því ap ræða meintan stöðugleika í stjórnartíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á kjörtímabilinu sem er að ljúka.

Hvar er þessi stöðugleiki, spurðu Rósa Björk og Þorbjörk Sigríður og minntu á afsagnir ráðherra, uppnám samfélagsins vegna spillingarmála, útreiðar Íslands í erlendum fjölmiðlum og þess að flokkur Sigríðar hefði ekki getað klárað tvö síðustu kjörtímabil sem hann hefði verið við stjórn.

Sigríður taldi engu að síður affarasælla að hafa hér við lýði tveggja flokka stjórn, helst einnar flokks stjórn Sjálfstæðisflokksins fremur en fjölflokkastjórn margra smáflokkasíns, en þær Rósa Björk og Þorbjörg Sigríður voru á öndverðum meiði og töldu umbótastjórn skipta meginmáli fyrir framtíð Íslands. Rósa Björk minnti þar á möguleikann á vinstri blokk við stjórnvölinn, en Þorbjörg Sigríður taldi veera kominn tíma til að hvíla öfgarnar í íslenskum stjórnmálum og hleypa hófsamri miðju að sem skapaði sennilega mestan stöðugleika til lengdar.

Eldlínan er endursýnd í dag, en hér má sjá þegar stjórnmálakonurnar tókust á um stöðugleikann í gærkvöld.