Fyrirtækin: vandinn er hátt vaxtastig

Staða fyrirtækjanna á Íslandi var í brennidepli sjónvarpsþáttarins Eldlínunnar á Hringbraut í gærkvöld, en þar mættu forystumenn úr samtökum atvinnulífsins til skrafs og ráðagerða um það sem þarf að laga í ranni viðskiptalífsins hér á landi.

Gestir þáttarins voru þeir Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, en þeir virtust vera sammála um að reglu- og efnahagsumhverið hér á landi væri fyrirtækjarekstri á margan hátt mótdrægt - og muni þar langsamlega mest um mun hærri vaxtakostnað sem fyrirtæki beri hér á landi miðað við fyrirtækin sem þau keppi við á erlendum mörkuðum, en þessi munur sé vitaskuld kominn til af þröngu krónuhagkerfi sem setji viðskiptalífinu sínar skorður. Þá nefndu þeir hátt flækjustig innan íslenskrar stjórrnsýslu sem væri svifasein og lítt lausnamiðuð, enda tefji hún oft og tíðum tiltölulega einfaldar aðgerðir og geri þar úlfalda úr mýflugu. Ekki bæti úr skák á aðhald og eftirlit hins opinbera, sem vissulega eigi að vera til staðar, fari í fjölda tilfella fram úr sér og hamli endurbótum og framförum í greininni. Þetta eftirrlitskerfi sé á margan hátt gamaldags og hægfara og jafnvel ekki í tengslum við rafræna miðlun samtímans. Loks minntust þeir á afturhaldssemi í tollamálum og verndarstefnu stjórnvalda í landbúnaðarmálum, sem væri tímaskekkja, en sýndi samkeppni og innflutningur á því sviði að greinin innanlands tæki við sér, hagræddi og næði nýrri og sgterkari stöðu á markaði eins og dæmin sönnuðu af t.d. meira frjálsræði í grænmetisrækt hér á landi. 

Eldlínan er aftur á dagskrá í kvöld og þá verður fjallað um breytingar á íslenska flokkakerfinu og hvaða afleiðingar þær munu hafa, en þátturinn er frumsyndur klukkan 23:00..