Eldingu sló niður á höfuðborgarsvæðinu

Sá óvanalegi atburður varð í morgun að eldingu sló niður í stjórnstöð Berghellu, gámaþjónustu og sló við það út rafmagni.

Samkvæmt heimildum Hringbrautar tók ekki langan tíma að koma rafmagni aftur á en atburðurinn þykir sérstakur, enda eldingar ekki algengar hér á landi.

Veðurstofan hefur ekki staðfest að um eldingu sé að ræða en starfsmenn hafa staðhæft að svo hljóti að hafa verið.