Eldgosið kostar á annan milljarð

Ríkisstjórnin hefur samþykkt viðbótarfjármagn til ahnda þeim stofnunum sem hafa þurft að sinna eftirliti og öðrum starfa vegna eldgossins í Holuhrauni á síðustu mánuðum. Fjárframlögin hafa nú verið hækkuð um tæplega 450 milljónir króna og er þá heildarkostnaður ríkissjóðs vegna gossins og afleiðinga þess orðinn nærfellt 1140 milljónir króna.


Svæðið er ennþá vaktað í þaula þótt eldgosinu eigi að heita lokið og verður mælingum og eftirliti haldið áfram um óákveðinn tíma. Vísindamenn hafa enda ekki útlokað að eldvirkni á svæðinu leiti aftur upp á yfirborðið - og þá er einnig talið nauðsynlegt að vakta svæðið svo ferðafólk fari sér ekki að voða í nýrunnu hrauninu sem er ægistórt, eða sem nemur tvöföldu flatarmáli Mývatns og raunar gott betur.