Eldgosið betra en inspired by iceland

  

Kristinn Hrafnsson fréttamaður og talsmaður Wikileaks hefur tekið saman gögn sem sýna fram á að Eyjafjallagosið átti mun meiri þátt í að vekja athygli umheimsins á Íslandi en bæði hrunið og annað sem komist hefur í heimsfréttirnar. Bendir margt til að sá áhugi sem kviknaði á Íslandi utan landsteinanna hafi skilað sér í gríðarlegum ferðamannastraumi æ síðan.

Kristinn hefur grafið upp mynd frá Google Trends, sem sjá má að ofan. Þar stendur E-punkturinn fyrir gosið í Eyjafjallajökli sem lamaði flugumferð víða um heim dögum saman. Athugunin stemmir við það sem margir ferðamenn hafa nefnt hér innanlands að þeir hafi fyrst fengið áhuga á íslandi þegar gosið lamaði flugumferð.

„Ég hef haldið á lofti þeirri tilgátu að gosið í Eyjafjallajökli árið 2010 hafi verið hin mesta blessun fyrir íslenskt efnahagslíf og sé meginástæðan fyrir fjölgun ferðamanna,“ segir Kristinn.

Myndin að ofan sýnir netáhuga á Íslandi og stigvaxandi fjölgun ferðamanna, eða úr hálfri milljón í milljón á árabilinu 2011-2014. Stóri toppurinn, E, er gosið, I er Hrunið, H er Búsáhaldabyltingin og D er gosið í Grímsvötnum 2011).

 Tölurnar um ferðamenn byggir Kristinn ýmist frá Ferðamálastofu eða Hagstofunni. „Ég hef áhuga á að halda þessu til haga því þett er á skjön við hinn ,,hentuga sannleika\" að það megi rekja aukninguna til árangurs af markaðsstarfi og þar með rökstyðja betl úr ríkissjóði í meira markaðsstarf,“ segir Kristinn.

Þar vísar hann til yfirlýsinga hérlendis um að Inspired by Iceland átakið hafi reynst mesta blessun landsins.

„Þetta eru engin algild vísindi þessi athugun, en það vita allir að fjölmiðlaumfjöllun um Ísland er besta markaðsstarfið,“ segir Kristinn.

„Gosið var til góðs,“ bætir hann við og vísar til ávinnings þjóðarbúsins í heild sinni.

Bændur á Suðurlandi kunna að líta  gosið öðrum augum, en því fylgdi fordæmalaust öskufall sem eins og fyrr segir lamaði umferð um allan heim. En dró umheiminn til okkar.