Eldsumbrot hófust í morgun mitt í 1.700 manna byggð á stóru eyjunni á Hawaii. Gossprungur mynduðust á að minnsta kosti tveimur stöðum og íbúarnir 1.700 voru fluttir heilu og höldnu á brott. Jarðeldarnir brutust út á sprungusvæði við eldfjallið Kilauea á austurhluta eyjarinnar.
Jarðvísindamenn, sem fylgjast náið með gosinu segja ómögulegt að segja til um hvar eldurinn kunni að koma upp, auk þess sem hætta stafi af eitruðum brennisteinsgufum. Fjallið hefur verið í nánast stöðugu virknisástandi í næstum þrjá áratugi, en umbrotin í morgun hófust eftir sólarhringslanga jarðskjálftahrinu, þar sem flestir skjálftanna voru í kringum 2 stig en sá stærsti 5 stig.
David Ige, ríkisstjóri Hawaii, hefur gangsett þjóðvarðlið og lýst yfir neyðarástandi á svæðinu.