Eldflaugavörpur í stað hjálpargagna

„Það er ótrúlegt að það skuli vera stór vöruflutningaflugvél sem flýgur 25 sinnum til Sádí Arabíu, ekki með hjálpargögn til þeirra sem þurfa þess, ekki með mat og lyf, ekki til að bjarga mannslífum. Nei, heldur til að fara með 170 þúsund jarðsprengjur, 850 þúsund skotfæri, 850 riffla og hríðskotabyssur og svo tvö þúsund eldflaugavörpur“, sagði Birgir Þórarinsson, þingmaður í umræðum á Þjóðbraut á fimmtudag um vopnaflutninga Air Atlanta.

Birgir, þingmaður Miðjuflokksins starfaði hjá Sameinuðu þjóðunum við yfirstjórn Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna í Miðausturlöndum um tveggja ára skeið til 2016.  

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG, varaformaður utanríkismálanefndar og Helga Vala Helgadóttir, Samfylkingu sem situr í samgöngunefnd þingsins tóku undir með Birgi í þættinum en þær báðu um sérstaka fundi um málið í nefndunum sem þær sitja í. 

Hægt er að nálgast þáttinn á vefnum hringbrut.is undir flipanum sjónvarp.