Hverjir gerðu árás á sýrlenska herstöðina?

Enn er ekki ljóst hvort mannskæð eldflaugaárás á herstöð Sýrlandssstjórnar í Homs héraði í morgun 100 km norðan við Damaskus var hefndarráðstöfun vegna hinar grimmilegu eiturvopnaárásar Sýrlendinga í borginni Douma í gær þar sem talið er að í það minnsta 70 hafi fallið og hundruð særst, þar af fjöldi saklausra borgara.

Donald Trump Bandaríkjaforseti fordæmdi árásina harðlega í gær og sagði Rússa og Írana bera ábyrgð á „skepnunni“ Assad, Sýrlandsforseta.

Fjórtán létust í árásinni á herstöðina í morgun, en auk Sýrlandshers hafa rússneskir og íranskir hermenn haldið þar til og einnig skæruliðar Hezbolla. Nokkrir Íranir eru meðal fallinna.

Rússar saka Ísraelsmenn um árásina og Íranir vöruðu Bandaríkin við því í morgun að brjóta ákvæði kjarnorkuvopnasamningsins við það. Bandaríska varnarmálaráðuneytið sver af sér árásina og Frakkar sömuleiðis. Frakkar sögðu í síðasta mánuði að þeir væru tilbúnir að gera árásir á Sýrlendinga ef þeir notuðu eiturvopn gegn saklausum borgurum.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur verið kallað saman í dag vegna árásarinnar.