Það verður mikið um að vera í eldhúsum Hrafnistuheimilanna við Laugarás í Reykjavík og Nesvöllum í Reykjanesbæ í hádeginu á Þorláksmessu á morgun þegar skötuveislan verður haldin á Hrafnistuheimilunum sjö á suðvesturhorni landsins.
Gert er ráð fyrir að allt að eitt þúsund manns snæði skötu og saltfisk á Hrafnistuheimilunum á morgun þegar íbúar, gestir þeirra og starfsfólk heimilanna kemur í mar.
Mestu annirnar verða í glænýju stóreldhúsi Hrafnistu við Laugarás í Reykjavík en þar munu hátt í 20 manns starfa í eldhúsinu við matreiðslu fyrir heimilin fimm á höfuðborgarsvæðinu; Laugarás, Skógarbæ, Boðaþing, Ísafold og Hraunvang. Dagleg afkastageta eldhússins nemur allt að tvö þúsund máltíðum.
„Það er mikil hefð fyrir skötu hérna og þetta er skemmtileg hefð sem kemur öllum í jólaskapið,“ segir Pétur Magnússon forstjóri Hrafnistu í samtali við Hringbraut. „Og þetta er alveg ótrúlegt magn. Ég veit ekki til þess að neinn sé að elda svona mikið af skötu annars staðar.“
Þannig má gera ráð fyrir að eldhúsið við Laugarás og hitt sem er starfrækt í Reykjanesbæ matreiði vel á fimmta hundrað kíló af skötu á morgun.