Ekki vitað um stórtjón í ofsanum

Eftir ofsaveður í gær og nótt virðist sem hvergi hafi orðið stórtjón.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni klukkan 7 í morgun segir að mikið vatn flæði yfir veg númer 823 við Hrafnagil í Eyjafirði og telst hann ekki fær minni fólksbifreiðum. Í gær flettist malbik  af veginum við Kolgrafabrú á Snæfellsnesi og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát.

Ófært er út í Súðavík vegna snjóflóða.

Enn er víða hvasst á Vesturlandi, Vestfjörðum og á Norðurlandi en vegir eru greiðfærir en þó eru hálkublettir á Holtavörðuheiði, Bröttubrekku og á fjallvegum á Vestfjörðum. Greiðfært er um Suður-, Suðausturland og Austurland.

Ríkisútvarpið hefur haldið úti öflugi frétta- og upplýsingavakt í alla nótt og má benda á vef fréttastofu. www.ruv.is. Varað er enn við asahláku og stormi enn víða. Hús voru rýmd í gær fyrir vestan og erilsamt hjá björgunarsveitum. Eitthvað var um að þakplötu færu á loft og bátar losnuðu í höfnum. Skólaakstur fellur niður í Fjallabyggð.

Eftir því sem næst verður komið varð þó hvergi stórtjón og engin krapaflóð hafa fallið á byggð en rýmt var á Patreksfirði þar sem komið var upp fjöldabjörgunarstöð í hótelinu í bænum..

Veðurspáin er svona: \"Suðvestan 18-25 m/s N-til, en lægir smám saman, mun hægari vindur syðra. Dálítil rigning eða slydda á S- og V-landi, en bjartviðri NA-lands. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast austast. Sunnan 8-13 og súld eða dálítil rigning á morgun, en áfram léttskýjað á NA-landi. Hiti 3 til 8 stig.\"