Ekki viss um áhrifin á ríkisstjórnarsamstarfið

„Í fyrsta lagi ræðir þingið þetta ekki vegna þess að þetta er framkvæmdaatriði sem að byggir á lögunum, hann [Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] gefur út reglugerð. Þess vegna hef ég sagt að þetta sé algjörlega hans ákvörðun og hann talaði reyndar ekki við mig. Ég veit hann talaði við forsætisráðherra, honum þótti það kannski nóg, það er bara hans mat. Mér hefði alveg þótt það fínt að vita af þessu fyrir fram að þetta væri að koma. Það skiptir kannski ekki öllu máli. Það sem mér finnst skipta máli er að ég er bara ósammála þessari ákvörðun.“

Þetta segir Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og vísar til ákvörðunar sjávarútvegsráðherra um að heimila áframhaldandi veiðar á langreyði og hrefnu til næstu fimm ára. Ákvörðunin byggir á ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og nýlegri skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagsleg áhrif hvalveiða. Skýrslan hefur þó verið afar mikið gagnrýnd. 

Guðmundur Ingi er gestur Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld, þar sem hann ræðir um hvalveiðar, friðlýsingar og plastmengun.

„Ég er ósammála því að halda áfram með hvalveiðar. Þær byggja vissulega á vísindaráðgjöf Hafrannsóknastofnunar en ég hef lýst því yfir áður og tel að við þurfum að líta til fleiri þátta eins og efnahagslegra þátta, samfélagslegra þátta og mér finnst skýrslan frá Hagfræðistofnun ekki svara þeirri þörf,“ segir Guðmundur Ingi.

Aðspurður um hvort hann og aðrir flokksmenn Vinstri grænna muni sætta sig við þessa ákvörðun sjávarútvegsráðherra segir Guðmundur Ingi: „Við búum við stjórnkerfi sem er þannig að sumar ákvarðanir getur ráðherra tekið einn og án þess að spyrja aðra í ríkisstjórninni. Þetta er dæmi um slíka ákvörðun. Eins og ég segi, ég er ósáttur við hana, ég get ekki breytt henni, ég sé ekki hvernig ég að geta gert það, ég hef komið mínum skoðunum á framfæri og á ekki von á því að þessu verði breytt. Ég er ekki ánægður með þetta.“

Flokkssamþykktir Vinstri grænna er lúta að hvalveiðum ganga í berhögg við þessa heimild sem sjávarútvegsráðherra hefur nú veitt til næstu fimm ára en Guðmundur Ingi er ekki viss um hvort ákvörðunin muni hafa einhver áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Hann hefði gjarnan viljað meiri umræðu í þinginu um málið en fékk ekki þá ósk sína uppfyllta.

Nánar er rætt við Guðmund Inga í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.