Ekki verið meira júlífrost á Þingvöllum í áratug

Hiti á Þingvöllum fór lægst niður í -1,5 stig í nótt og er um að ræða mesta frost sem mælist þar í júlí frá árinu 2009.

„Hitinn féll mjög úr 10,1 stigum kl. 22 í 1,7°C kl. 1. Á Kálfhóli á Skeiðum frysti einnig og e.t.v. víðar,“ skrifar Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann vekur athygli á þessari óvenjuköldu nótt.

Að sögn Einars er spáin næstu tíu daga á þá leið að landið verði meira og minna í kaldri skál eins og hann kallar það en vel má sjá merki þess á meðfylgjandi spákorti.

Þá verði norðan- og norðausturáttir ríkjandi.

„Þær verða fleiri bjartar og svalar nætur sunnanlands og ekki loku fyrir það skotið nú þegar tekur að dimma um lágnættið að frostnæturnar s.s. á Þingvöllum verði fleiri.“