Brexit: ekki verður aftur snúið!

Theresa May forsætisráðherra Stóra-Bretlands segir að ekki verði aftur snúið og Bretar muni byggja upp land sitt sem sterkara og sanngjarnara land. 

Boris Johnson utanríkisráðherra Breta sagði að gærdagurinn sé sögulegur. Bretar hafi fulla ástæðu til að vera bjartsýnir á niðurstöður Brexit áforma rikisstjórnarinnar - útgöngu úr Evrópusambandinu. 

Morgunblaðið hefur eftir Theresa May að ríkisstjórn hennar hafi brugðist við lýðræðislegum vilja bresku þjóðarinnar og skýrri og sannfærandi niðurstöðu breska þingsins.

Tekur nú við tveggja ára ferli þar sem Bretar reyna til þrautar að ná góðum eðá ásættanlegum samningi við ESB um öll mál sem leiða þarf til lykta við útgönguna. Hæst ber form aðgangs Breta að innri markaði ESB eftir 2019. 

Nánar www.mbl.is og www.openeurope.org.uk  og www.bbcnews.com