Ekki valkostur að snúa af leið

Það er ekki val­kost­ur að taka til baka stuðning Íslands við viðskipta­bann Evr­ópu­sam­bands­ins og annarra vest­ur­velda gegn Rússlandi þrátt fyr­ir að Rúss­ar hafi nú beint refsiaðgerðum sín­um að Íslandi.

Þetta seg­ir Gunn­ar Bragi Sveins­son, ut­an­rík­is­ráðherra, í sam­tali við mbl.is, en hann seg­ir að ætl­ast sé til þess að banda­menn Íslands muni bregðast við og liðka um fyr­ir sölu á sjáv­ar­af­urðum eins og þeir geta. Þá seg­ir hann að skoðað verði hvort að veitt verði aðstoð til út­flytj­enda sem komi illa úr aðgerðum Rússa.

Gunn­ar seg­ir sem dæmi um aðgerðir til aðstoðar út­flytj­end­um að Norðmenn hafi í ein­hverj­um til­fell­um veitt trygg­ing­ar til út­flutn­ings­fyr­ir­tækja: \"Þetta er eitthvað sem þarf að fara yfir. Ég legg áherslu á að það er ekk­ert úti­lokað í þessu, ef út­flytj­end­ur sækj­ast eft­ir ein­hverri aðstoð að þá verði skoðað hvað hægt er að gera,“ segir hann í samtali við vefinn.

Aðspurður um hvort það teng­ist skatta eða tolla­mál­um seg­ir Gunn­ar Bragi að hann hafi óskað eft­ir að ræða við ut­an­rík­is­mála­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins þar sem hann ætl­ar að hefja viðræður um niður­fell­ingu á toll­um á afurðum sem eru í dag tolllagðar og voru flutt­ar til Rúss­lands: \"Ég mun óska eft­ir að þær viðræður hefj­ist strax,“ seg­ir Gunn­ar, en um er að ræða mak­ríl og loðnu, auk síld­ar.

Ekki hafa enn borist form­leg­ar út­færsl­ur á um­fangi refsiaðgerða Rússa en Gunn­ar seg­ir að bú­ast megi við að þær séu svipaðar og hafa verið í gildi gagn­vart öðrum ríkj­um síðasta árið. Ná þær til sjáv­ar­af­urða og land­búnaðar­af­urða, þótt ákveðnar land­búnaðar­af­urðir séu und­anþegn­ar.

Gunn­ar seg­ir í samtali við vefinn að ut­an­rík­is­ráðuneytið hafi verið í viðræðum við sendi­herra Rússa í dag og að í gegn­um sendi­ráð Íslands í Rússlandi hafi verið reynt að óska eft­ir fund­um eða sam­töl­um við rúss­neska ráðamenn. Seg­ir hann að reynt verði að fá fund með rúss­neska ut­an­rík­is­ráðherr­an­um á fundi í Alaska í Banda­ríkj­un­um í lok mánaðar­ins, en enn er óvíst hvort hann verði þar.

Aðspurður hvort það komi til greina að draga til baka stuðning Íslands við aðgerðir Evr­ópu­sam­bands­ins og vest­ur­velda gegn Rússlandi seg­ir Gunn­ar það ekki koma til greina. „Ég get ekki séð að það sé val­kost­ur. Það er eng­in til­laga kom­in fram í rík­is­stjórn fram að þessu og ekki held­ur í ut­an­rík­is­mála­nefnd. Þannig að það er ein­hug­ur að þetta sé með þess­um hætti. Við mun­um að sjálf­sögðu ætl­ast til þess að banda­menn okk­ar bregðist við og liðki til með markaði og aðstoði okk­ur að koma þess­um vör­um í verð ef þeir geta það,“ seg­ir Gunn­ar og bæt­ir við að rætt verði við ráðamenn í Evr­ópu­sam­band­inu um þessi mál á næst­unni.

Fréttin er höfð eftir mbl.is.