Sunnudaginn 17. nóvember árið 1940 vígði biskup Íslands Akureyrarkirkju hina nýju sem að dómi arkitekts hennar, Guðjóns Samúelssonar, var „langveglegasta og fegursta kirkjubygging, sem reist hefur verið á Íslandi af lúterskum söfnuði“ eins og hann komst að orði í ávarpi sínu í vígsluathöfninni. Vígslan hófst í raun kvöldinu áður með því að kirkjuklukkunni var hringt. Í bæjarblaðinu Degi var hringingin auglýst og tekið fram að ekki væri um loftvarnamerki að ræða!
Nú um helgina verður 75 ára vígsluafmælis kirkjunnar minnst. Dagskráin hefst í dag, laugardag, með sýningum á tónlistarævintýrinu Lítil saga í orgelhúsi eftir Guðnýju Einarsdóttur, orgelleikara. Ævintýrið gerist í orgelhúsi og gengur á ýmsu hjá pípunum þar. Flytjendur eru höfundurinn, Guðný Einarsdóttir, og Bergþór Pálsson, sem er sögumaður. Myndir gerði Fanney Sizemore en tónlistina samdi Michael Jón Clarke. Sýningarnar eru kl. 13 og 14:30.
Klukkan 18 í dag verður kirkjuklukkunni hringt með sama hætti og kvöldið fyrir vígsluathöfnina fyrir 75 árum og skal enn tekið fram að ekki er um loftvarnamerki að ræða!
Dagskrá sunnudagsins hefst með sunnudagaskóla í Akureyrarkirkju kl. 11. Hann er í umsjá sr. Sunnu Dóru Möller en Hjalti Jónsson er henni til halds og trausts. Lára Sóley Jóhannsdóttir flytur lög að nýju plötunni sinni Draumahöll.
Biskupinn mætir
Klukkan 14 er hátíðarmessa. Prestar kirkjunnar, sr. Hildur Eir Bolladóttir og sr. Svavar Alfreð Jónsson, þjóna fyrir altari en biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, prédikar. Kór Akureyrarkirkju syngur ásamt kammerkórnum Hymnodiu. Organistar eru Eyþór Ingi Jónsson og Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Í messunni frumflytur Kór Akureyrarkirkju lagið Á vegi sem Daníel Þorsteinsson samdi við texta Hjörleifs Hjartarsonar. Einnig verður flutt verkið Te Deum eftir Michael Jón Clarke. Þar syngur Helena G. Bjarnadóttir einsöng og Helgi Þ. Svavarsson leikur á horn.
Eftir messu verður Kvenfélag Akureyrarkirkju með sína árlegu kaffi- og lukkupakkasölu í Safnaðarheimili en kvenfélagið var á sínum tíma mikilvægur styrktaraðili kirkjubygginarinnar. Einnig verður sýning á Akureyrarljóðum í forkirkju.
Á sunnudagskvöldið kl. 20 verða tónleikar í Akureyrarkirkju til styrktar Ljósberanum, líknarsjóði kirkjunnar sem er til líknarmála. Þar koma fram Kór Akureyrarkirkju undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar, Stúlknakór Akureyrarkirkju og Eldri barnakór Akureyrarkirkju undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur, söngvararnir Anna Kristín Þórhallsdóttir, Björg Þórhallsdóttir, Helena G. Bjarnadóttir, Elfa Dröfn Stefánsdóttir, Einar Clausen og Ágúst Ólafsson ásamt hljómsveit. Konsertmeistari er Lára Sóley Jóhannsdóttir. Flutt verður kantatan „Men Herz und Mund und Tat und Leben“ eftir J. S. Bach og tónlist eftir Báru Grímsdóttur, Daníel Þorsteinsson, Händel, Mascagni og fleiri. Aðgangseyrir er kr. 3.500 og rennur óskiptur í líknarsjóðinn.