Ekki trúa öllu sem þið lesið

Falsfréttir og nafnlaus áróður sem dreift er í gegnum samfélagsmiðla eru orðin sífellt stærri hluti af veruleika okkar. Þessi mál eru til umfjöllunar í sjónvarpsþættinum Kjarnanum í kvöld á Hringbraut klukkan 21.

„Mér finnst vanta nú sem fyrr áherslu á það að trúa ekki öllu sem þú lest. Þótt þér finn­ist það geta verið satt þýðir ekki að það sé satt. Bara að eitt­hvað meiki sens, þýðir ekki að það sé satt. Bara það að þér detti það í hug, þýðir ekki að það sé satt. Maður þarf að efast. Efast um upp­lýs­ingar sem maður fær.“ Þetta segir Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, í sjón­varps­þætt­inum Kjarn­anum í kvöld.

 

Elfa Ýr Gylfa­dótt­ir, fram­kvæmda­stýra fjöl­miðla­nefnd­ar, er einnig gestur þátt­ar­ins. 

Hún segir þar að það hefði alveg mátt reikna með því að það sama ger­ist á Íslandi sem ger­ist ann­ars stað­ar. Því hafi áróð­urs- og árás­ar­aug­lýs­ingar í gegnum sam­fé­lags­miðla ekki átt að koma á óvart. „Ég held líka að eitt af því sem er oft sagt í umræð­unni er að áróður hefur alltaf verið til. Við höfum alltaf reynt að hafa áhrif á fólk, skoð­anir fólks og svo fram­veg­is. En það sem við verðum að hafa í huga er að við erum búin að gefa alveg gríð­ar­lega mikið af upp­lýs­ingum um okk­ur. Það þýðir það að það eru stór­fyr­ir­tæki sem hafa mjög miklar upp­lýs­ingar um hvernig við erum, svona prófíla um okk­ur, sem að gefa ákveðnar vís­bend­ingar um það hvaða skoð­anir við höfum og svo fram­veg­is. Það er þarna sem að það sem heitir á ensku „micro tar­get­ing“ kemur inn. Það er að segja mis­mun­andi fram­setn­ing á t.d. gildum eða hvernig maður hefur til­finn­ing­ar, það er hægt að nota það gagn­vart ólíkum hópum í dag.“