Breytingar þær sem samþykktar voru á rammaáætlun í gærdag og gera ráð fyrir að Hvammsvirkjun fari í nýtingarflokk en virkjanir í neðsta hluta Þjórsár bíði um sinn gera það að verkum að Landsvirkjun getur ekki útvegað öllum þeim fyrirtækjum orku sem óskað hafa eftir.
Hvorki Holtavirkjun né Urriðafossvirkjun fengust fluttar úr biðflokki í nýtingarflokk í þeims amningum sem tókust loks á milli stjórnar og stjórnarandstöðu á síðustu dögum vorþingsins. Það merkir að Landsvirkjun mun ekki geta útvegað nægilega orku til að anna tveimur stórum stóðiðjuverkefnum í Helguvík og á Grundartanga, annars vegar á vegum Thorsil og hins vegar á vegum Silicor Matreial.
Að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag, sem fjallar ítarlega um málið, er samanlögð orkuþörf fyrirtækjanna 125 MW en Hvammsvirkjun gefur aðeins 82 MW.
Ef allar virkjanirnar í neðri hluta Þjórsár hefðu verið samþykkar af Alþingi hefði það þýtt samtals 264 MW.
Jón Gunnarsson formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir við blaðið í dag að þessi niðurstaða hljóti að teljast vonbrigði; erfitt verði að útvega orku til þeirra verkefna sem blasi við á næstu árum í ljósi þessarar niðurstöðu Alþingis.