Ekki til fé fyrir graut handa börnum

Kvikan, fréttaskýringaþáttur Hringbrautar, mun í kvöld greina frá upplýsingum sem benda til að fátækt sé síst í rénun. Þvert á móti segir Anna Valdís Jónsdóttir, forstöðukona Fjölskylduhjálparinnar á Suðurnesjum, að 400 heimili í Reykjanesbæ hafi þurft matarúthlutun í vikunni sem leið. Anna Valdís segist aldrei hafa séð annað eins en hún hefur samanburð til margra ára fyrir fjölskylduhjálpina.

„Þetta er sannleikurinn sem enginn vill vita um,“ segir Anna Valdís.

Fjölskylduhjálpin þurfti að vísa frá 60 fjölskyldum sem föluðust eftir mat.

„Þessi jól verð þau erfiðustu síðan við byrjuðum,“ segir Anna Valdís.

Hún segir að það fólk sem leiti til Fjölskylduhjálparinnar sé einkum fólk á bótum, öryrkjar, eldri borgarar, einnig einstæðir foreldrar og atvinnulausir, margt ungt barnafólk vanti pening.

„Fátækt er til og hún er miklu meiri en sumt fólk gerir sér grein fyrir. Við erum að fá fólk sem hefur lifað að búið er að loka fyrir rafmagn, börnin fara svöng i skólann, heimilin eiga ekki fyrir mjólkurgraut handa börnunum, það er alltaf verið að tala um góðæri en fullt af fólki nýtur þess ekki.“

Fram mun koma í Kvikunni í kvöld að lágmarksgreiðslur bóta hrökkva hvergi nærri til fyrir framfærslu. Kvikan mun ræða þörf þess að hækka bætur og jafnvel umbylta bótakerfinu. Halldóra Mogensen, varaþingmaður Pírata, mun ræða þingályktunartillögu Pírata um borgaralaun í stað bóta. Það yrði ein mesta bylting í íslensku verlferðarkerfi í áratugi en farið verður ítarlega yfir hugmyndina í þættinum. Til andsvara verður Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks. Hann geldur varhug við hugmyndum Pírata og telur að með þeim hverfi hvati til að hver og einn bjargi sér.

Kvikan verður sýnd klukkan 21.30 á Hringbraut í kvöld, endursýning klukkan 23.30.