Ekki þessi leiðindi

“Ekki þessi leiðindi” sagði rótari og bílstjóri Bogomil Font og Milljónamæringanna á árum fyrr þegar aðdáendur þeirra og aðrir trufluðu leið þeirra af tónleikastaðnum. Orð rótarans urðu titill metsöluplötu.

Gunnar Bragi gæti verið rótarinn í Framsókn sem vill að \"leiðindin\" hætti í flokknum. Hvort það leiði til \"metsölu\" í framtíðinni veit enginn. Gunnar Bragi skrifar á facebook síðuna sína í dag: “Þessir dagar eru flokknum okkar erfiðir eftir slæm úrslit kosninga og mikla vinnu þarf til að græða sár og jafna deilur. Hvert og eitt þurfum við að líta í eigin barm og meta hvað við höfum getað gert öðruvísi og betur. Nú er ekki tími upphrópana heldur þarf að setja niður ágreining. Oft hefur verið sagt að enginn sé stærri en flokkurinn. Það á við nú sem áður enda verður flokkurinn okkar ekki 100 ára af sjálfu sér”