Gunnhildur Arnardóttir, framkvæmdastjóri Stjórnvísi, og dætur hennar, Hrafnhildur og Berglind Hafsteinsdætur, stýra þremur stórum félögum í atvinnulífinu. Gunnhildur er gestur Jóns G. í viðskiptaþætti hans í kvöld. Stjórnvísi er stærsta stjórnunarfélag landsins með yfir 3.500 félagsmenn og yfir 300 stórfyrirtæki innanborðs. Hrafnhildur er framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu en hún var raunar gestur Jóns G. fyrir páska. Berglind er formaður Flugfreyjufélags Íslands en það félag hefur verið talsvert í umræðunni síðustu mánuðina. „Það er ekki stjórnarkreppa á þessu heimili,“ hrekkur upp úr þáttastjórnandum í skemmtilegu spjalli við Gunnhildi.
„ekki stjórnarkreppa á þessu heimili“
Fleiri fréttir
Nýjast